tag:blogger.com,1999:blog-4380010446719033929.post1202027292727501755..comments2023-09-07T12:47:48.140+00:00Comments on Friðrik Jónsson: Framsókn og ESB: Að hrökkva eða stökkva...Friðrik Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/02333535087967161738noreply@blogger.comBlogger1125tag:blogger.com,1999:blog-4380010446719033929.post-19802116402931137512008-09-23T18:55:00.000+00:002008-09-23T18:55:00.000+00:00Framsóknarflokkurinn nýtti sér í æsku sinni framsæ...Framsóknarflokkurinn nýtti sér í æsku sinni framsæknar hugmyndir og störf fólks í þeim anda, aðalega í bændastétt og kenndi sig við samvinnuhugsjón. Nú er þessi flokkur búin að kasta þeirri hugsjón fyrir róða og hefur lagst í það að rífa niður síðustu minjar hennar, þ.e sparisjóðina. Sumir forystumanna þessa fyrrum bændaflokks vilja nú gera betur til að eyða síðustu hugsjónaglýjunni og boða frjálsan innflutning landbúnaðarvara og siglingu erlendra fiskiskipa inn í landhelgi okkar, með inngöngu í EB.<BR/>Blind kreddutrú á markaðshagkerfið hefur gagntekið leiðtoga þessa aumkunnarverða flokks. Þeir eru lokaðir fyrir djúpum skilningi á hinum hnígandi ferli þessarar hugmyndafræði kaupsýslustéttarinnar. Það hefur engin áhrif á þá þótt hin "ósýnilega hönd" Adams Smith sé skyndilega orðin sýnileg í Bandaríkjunum og víða og birtist sem krumla ríkisvaldsins sem í örvæntingu er að reyna að bjarga hinu kapitalíska fjármálakerfi Vesturlanda.<BR/>Framsóknarflokkurinn hefur hent frá sér öllum góðum hugsjónum og hælað sig fastan við gróðahyggjuöfl í samfélaginu. Þau öfl vildu fyrir nokkrum árum setja krónuna á "flot" og við erum að súpa seyðið af því. En í stað þess einfaldlega að setja hindranir á gjaldeyrisviðskipti, þá vilja þeir smala okkur inn í EB.<BR/><BR/>Guttormur Sigurðsson, fyrrum framsóknarmaðurAnonymousnoreply@blogger.com