föstudagur, 29. ágúst 2008

Fréttablaðið færist nær!

Á bls. 2 í Fréttablaðinu í dag er að finna eftirfarandi frétt:

Breytt dreifing Fréttablaðsins:
Blaðið fært nær lesendunum

Fréttablaðinu verður komið fyrir í dreifikössum á Selfossi, í Hveragerði, Reykjanesbæ, Akranesi og Borgarnesi í stað dreifingar á hvert heimili.
„Með þessu erum við að færa blaðið nær lesendunum,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365-miðla. Þannig sé til dæmis hægt að hengja kassana á ljósastaura í hverfinu, að sögn Ara. Þetta bæti þjónustuna á stöðum þar sem dreifing var aðeins á sölustöðum. Breytingarnar taka gildi á næstu þremur mánuðum. Blaðberum hefur í kjölfarið verið sagt upp störfum á fyrrnefndum stöðum. - vsp


Já, það liggur í augum uppi, sérstaklega núna þegar haustlægðirnar eru farnar að berja á okkur, að það mun standa mér mun nær að staulast mót vindi út að einhverjum ljósastaur í stað þess að fá blaðið í lúguna heima!

2 ummæli:

  1. Þetta er alveg lygilegur spuni í forstjóranum. Þessir menn telja að fólk sé fífl.
    En það verður fínt að losna við að þessu drasli sé troðið inn á mann.

    SvaraEyða
  2. "Betri þjónusta", my ass!

    SvaraEyða

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.